Welcome to MyBunny.TV - Your Gateway to Unlimited Entertainment!
Enjoy 6,000+ Premium HD Channels, thousands of movies & series, and experience lightning-fast instant activation.
Reliable, stable, and built for the ultimate streaming experience - no hassles, just entertainment!
MyBunny.TV – Cheaper Than Cable • Up to
35% Off Yearly Plans • All
NFL, ESPN, PPV Events Included 🐰
Join the fastest growing IPTV community today and discover why everyone is switching to MyBunny.TV!
Start Watching Now
Bubbi Morthens
Talað við gluggann
[Texti fyrir "Talað við gluggann"]
[Vísa 1]
Ég hef staðið við gluggann
Heyrt hann tala um komandi harðæri, nístandi él
Aldrei fyrr séð hann svo hryggan stara
Þegar þú kvaddir hvað ég skildi hann vel
Sumarið er farið, það fraus í hylnum
Eins og hvítt lín kom fyrsti snjórinn í nótt
Þrestirnir dansa á ísuðum línum
En hér inni er allt stillt og rótt
[Viðlag]
Eldurinn í arninum með seiðandi skugga spyr mig:
"Hvar er hún í nótt?
Sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
Þér blítt þar til allt var hljótt?"
Og ég get ekki, og ég get ekki
Og ég get ekki, og ég get ekki
Svarað því
[Vísa 2]
Ég hef staðið við gluggann
Heyrt hann tala, spurt hef ég hann:
Sér hann þig þar sem þú ferð?
Þakinn rósum, kaldur - vill ekki svara
Hvort ást til mín í hjartanu þú berð
Ég hef staðið við gluggann
Séð hann stara á norðanvindinn
Út í fjúkinu leika sér
Stundum heyri ég hlátur, í gólffjölum marra
Hjartað tekur kipp en það er ekkert hér
[Viðlag]
Eldurinn í arninum með seiðandi skugga spyr mig:
"Hvar er hún í nótt?
Sem var vön að halda um höfuð þitt og rugga
Þér blítt þar til allt var hljótt?"
Og ég get ekki, og ég get ekki
Og ég get ekki, og ég get ekki
Svarað því