Welcome to MyBunny.TV - Your Gateway to Unlimited Entertainment!

Enjoy 6,000+ Premium HD Channels, thousands of movies & series, and experience lightning-fast instant activation.
Reliable, stable, and built for the ultimate streaming experience - no hassles, just entertainment!

MyBunny.TV – Cheaper Than Cable • Up to 35% Off Yearly Plans • All NFL, ESPN, PPV Events Included 🐰

Join the fastest growing IPTV community today and discover why everyone is switching to MyBunny.TV!

Start Watching Now
Bubbi Morthens
Seinasti dagurinn

Þig vekur þorpsins vökuljóð
Vinirnir horfnir frá þér
Dagurinn vaknar í vindlings glóð
Og vonin hún slokknar í þér

Uppi í hlíðinni kofinn hýmir lágur
Hokinn þú staulast á fætur
Yfir kajann ríkur saltur sjár
Og sest í hjartarætur

Á bandið tonnin fjórtán fara
Fimmtán ef þú telur með slý og þara
Sömu tökin í tuttugu ár
Tíminn læknar engin sár

Með stirðan skrokkinn stendur þú
Starir út um gluggann
Sem gamall maður manstu nú
Í myrkrinu feigðarskuggann

Fyrir sunnan bíður þín pantað pláss
Prísund fyrir gamalmenni
Þér verður sent það stofustáss
Sem þeir stimpla ekki sem brenni

Einskis nýtur njóttu þess
Sem nóttin vill þér færa
Á Grund þú hlýtur heiðurssess
Og handavinnu að læra