[Intro]
Gimsteina og perlur, gullsveig um enni
Sendi ég henni ástinni minni
Öll heimsins undur ef ég þá nenni
Færi ég henni, ástinni minni
[Verse 1]
Lífsvatnið dýra úr lindinni góðu
Færi ég henni ef ég nenni
Hesturinn gullsól hóflega fetar
Heimsenda‘ að rata ef ég nenni
[Verse 2]
Ég veit ég átti hér óskasteina
Þá gef ég henni ef hún vill fá mig
Ég gæti allan heiminn ástinni minni
Óðara gefið ef hún vill sjá mig
[Verse 3]
Kóngsríki öll ég kaupi í snatri
Koss fyrir lítið ef ég nenni
Fegurstu rósir af runnum þess liðna
Rétti ég henni ef ég nenni
[Bridge]
Aldrei framar neitt illt í heimi
Óttast þarf, engillinn minn
Því ég er hér og vaki
[Verse 4]
Skínandi hallir úr skýjum mér svífa
Ekkert mig stöðvar ef hún vill mig
Í dýrðlеgri sælu dagarnir líða
Umvafðir töfrum ef hún vill mig
[Verse 5]
Einhverja gjöf ég öðlast um jólin
Ekki mjög dýra sendi ég hеnni
Ef ekkert skárra ástand í vösum
Á ég þá kort að senda henni
Ef hún vill mig, ef hún vill mig
[Outro]
Ef hún vill mig (Ef hún vill mig)
Ef hún vill mig (Ef hún vill mig)
Ef ég get slegið einhvern þá fær
Ástin mín gjöf frá mér