Björk
Óskasteinn (Live on September 3rd, 2013)
Fann ég á fjalli fallega steina
Faldi þá alla, vildi þeim leyna
Huldi þar í hellisskúta heillasteina
Alla mína unaðslegu óskasteina
Langt er nú síðan leit ég þá steina
Lengur ei man ég óskina neina
Er þeir skyldu uppfylla um ævidaga
Ekki frá því skýrir þessa litla saga
Gersemar mínar græt ég ei lengur
Geti þær fundið telpa' eða drengur
Silfurskæra kristalla með grænu og gráu
Gullna roðasteina rennda fjólubláu
Fann ég á fjalli fallega steina
Faldi þá alla, vildi þeim leyna
Huldi þar í hellisskúta heillasteina
Alla mína unaðslegu óskasteina
Fann ég á fjalli fallega steina
Faldi þá alla, vildi þeim leyna
Huldi þar í hellisskúta hеillasteina
Alla mína unaðslegu óskasteina